Við erum systkinin Dagný Guðmunda og Gunnar Ágúst Sigurðarbörn
Myndaalbúmið er læst. Lykilorðið: Hvað er amma á Selfossi kölluð?
Dagný Guðmunda fæddist þann 17. september 2007 og var 17 merkur og 53 sentimetrar.
Ég er alveg yndislegt barn. Stækka og stækka og er algjör bjútíbolla, hress og skemmtileg. Mamma fann tvær tennur þegar ég var rétt að verða fjögurra mánaða og í kjölfarið fór ég að fá graut tvisvar á dag enda algjört matargat. Ég er farin að segja nokkur orð. Fyrst orðið mitt var ,,datt" og það næsta ,,týnd". Ég geri líka alls konar kúnstir og uppáhalds dótið mitt er skyrtuvasinn hjá afa Gauja og afa Gunnari.
Við fjölskyldan erum flutt í húsið okkar og nú hef ég alveg rosalegt pláss til að bruna um á hjólagrindinni minni. Mamma er byrjuð að vinna og ég eyði dögunum að leika við ömmu mína á meðan.
Ég byrjaði í leikskóla í ágúst 2009. Mér finnst það æðislega gaman, ég er búin að læra fullt af nýjum lögum og er sí syngjandi og raulandi. Það er orðið þónokkuð síðan ég varð altalandi og er byrjuð að pæla í öllum sköpuðum hlutum.
Gunnar Ágúst fæddist 24. mars 2010 og var 16 merkur og 52 sentimetrar.
Ég geri lítið annað en að sofa og drekka. Er svo auðvitað alveg fullkominn.
Foreldrar okkar heita Guðbjörg Guðjónsdóttir og Sigurður Gunnarsson.
Við búum á Selfossi.
- Ásgeir Skarphéðinn
- Elísabet
- Gestur Ingi og Kristinn Guðni
- Halldór Örn og Einar Logi
- Jakob Franz, Birgitta Fanný og Gunnar Flosi
- Kolfinna Sjöfn
- Kristófer Tómas
- Smári Þór og Nökkvi Þór
- Stormur og Frigg
- Tómas og Kristófer
- Unnur María
- Þórarinn Óskar
